Fyrirtækið / 02

Um okkur

Vinnuverndarnámskeið ehf. er íslenskt fræðslufyrirtæki sem byggir á reynslu úr eftirliti, kennslu og atvinnulífi.

Kennari og þátttakendur við verklega öryggisfræðslu

Okkar saga

Fyrirtækið var stofnað í desember 2021 af Eggerti Björgvinssyni, Guðmundi Kjerúlf og Leifi Gústafssyni. Þeir höfðu allir starfað hjá Vinnueftirlitinu og Vinnuverndarskóla Íslands.

Við bjóðum námskeið á sviði vinnuverndar, vinnuvéla og krana og skipuleggjum einnig fræðslu á vinnustöðum.

02 / Hlutverk

Hlutverk okkar

01

Auka öryggi

Gera þekkingu að virku verkfæri á vinnustað.

02

Efla fagmennsku

Tengja réttindi, verklag og ábyrgð.

03

Styðja atvinnulífið

Aðlaga fræðslu að raunverulegum verkefnum.

03 / Teymið

Okkar fólk

GK

Guðmundur Kjerúlf

Eigandi og kennari

Menntaður í heimspeki, opinberri stjórnsýslu og kennslufræði. Starfaði hjá Vinnueftirlitinu og stýrði Vinnuverndarskóla Íslands.

EB

Eggert Björgvinsson

Eigandi og kennari

Vélstjóri, grunnskólakennari og MPA. Starfaði hjá Vinnueftirlitinu við fræðslu og vinnuvernd.

LG

Leifur Gústafsson

Eigandi og kennari

Vélstjóri og rekstrarverkfræðingur með framhaldsnám í lýðheilsu og stjórnsýslu.

MP

Magdalena Poslednik

Verkefnastjóri

Menntuð í ferðamálafræði og markaðsfræði. Vinnur meðal annars að ensku og pólsku námsefni.